|
625.is Ólafsfjörður í nærmynd |
|
26.01.2012 08:13Skóla- og frístundaakstur fellur niður í dagSkóla- og frístundaakstur fellur niður í dag, fimmtudaginn 26. janúar er fram kemur á heimasíðu Fjallabyggðar. Enda er þetta spurning hvort nokkur eigi að vera að ferðast á þessum tíma. Meðfylgjandi mynd er af vef vegagerðarinnar og sýnir færð á vegum um landið. Skrifað af Gísli Rúnar 19.01.2012 23:25Snjór um alla veröld- frítt í fjalliðSkíðafélags Ólafsfjarðra býður öllum frítt á skíðasvæðið Tindaöxl sunnudaginn 22. janúar í tilefni af verkefninu "snjór um víða veröld". Hvetjum fjölskyldur til að mæta saman á skíðinmeð góða skapið, og gera sér góðan dag. Skrifað af Gísli Rúnar 15.01.2012 21:55Skíðamót í ÓlafsfirðiUm helgina fór fram bikarmót í göngu og alpagreinum á Skíðasvæðinu við Tindaöxl Nánar hægt að lesa um mótin á heimasíðu Skíðafélagsins, http://skiol.fjallabyggd.is/
Skrifað af Gísli Rúnar 14.01.2012 22:26Þorrablót KKSNú er um að gera að taka daginn frá því hið árlega KKS Þorrablót verður í Íþróttahúsinu á Siglufirði laugardaginn 18. febrúar 2012. Þetta er fimmta skiptið sem KKS þorrablót er haldið og hefur það heppnast mjög vel, maturinn einstaklega góður, sem og skemmtiatriðin. Nánari upplýsingar verða birtar fljótlega á heimasíðu KKS, www.kks.is Skrifað af Gísli Rúnar 12.01.2012 11:16Breytingar í Símaskrá 2012 fyrir ÓlafsfjörðKnattspyrnufélag Fjallabyggðar óskar eftir breytingum í símaskránna sem síðast kom út árið 2008. Stefnt er að útgáfu fyrir janúarlok. Tekið er við tilkynningum á kf@kfbolti.is Skrifað af Gísli Rúnar 11.01.2012 22:00Skóla- og frístundaaksturFjallabyggð hefur ákveðið að framlengja núverandi aksturstöflu um tvær vikur. Taflan verður því óbreytt til og með 27. janúar nk. sjá aksturstöfluna hér: http://www.fjallabyggd.is/static/files/.pdf/1325590996-akstur_vetur_2011_2012_03.01.12_v01.pdf Skrifað af Gísli Rúnar 09.01.2012 23:32Zumba námskeiðZumba Fitness námskeið verður haldið í Ólafsfirði helgina 20.-22. janúar næstkomandi. Einföld spor, mikil brennsla, skemmtileg tónlist og frábær félagsskapur. Námskeiðið verður haldið í íþróttahúsinu. Tímarnir verða samkvæmt eftirfarandi stundarskrá Föstudaginn 20. Janúar kl: 18:00-19:00 Laugardaginn 21. Janúar kl: 10:00-11:00 Sunnudaginn 22. Janúar kl: 10:00-11:00 Verð fyrir námskeiðið er 4.000.- öll helgin Frekari upplýsingar og skráning í síma 8689390 eða í Email zumba-loa@visir.is Skrifað af Gísli Rúnar 09.01.2012 21:10Jafntefli í 1. leik HleðslumótsinsLið Þórs2 og KF sættust á skiptan hlut í síðasta leik fyrstu umferðar Hleðslumótsins sem fram fór í Boganum í gær. Síðari hálfleikur var nokkuð svipaður þeim fyrri að því leytinu til að KF var nokkru sterkari aðilinn og tókst að skapa sér nokkur marktækifæri meðan sóknarleikur Þórs2 var heldur bragðdaufur. Á 57. mínútu fá Þórsarar dæmda vítaspyrnu eftir að varnarmaður KF hafði togað sóknarmann Þórs2 niður í vítateignum. Menn voru misjafnlega sáttir við þá ákvörðun en ekki skal deila við dómarann. Ingólfur Árnason steig á punktinn og jafnaði leikinn með góðri spyrnu. Hættulegasta færi KF-inga í síðari hálfleik fékk Þórður á 74. mínútu þegar hann slapp einn í gegnum varnarlínu Þórsara en Ari sá við honum í markinu. Í uppbótartíma leiksins fékk Þórður svo að líta beint rautt spjald fyrir kjaftbrúk. Leikmenn liðanna sættust á skiptan hlut og sitja því í 2. og 3. sæti B-riðils eftir fyrstu umferðina. Skrifað af Gísli Rúnar 06.01.2012 15:34Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2012Menningarnefnd hefur valið bæjarlistamann Fjallabyggðar 2012. Fyrir valinu varð Guðrún Þórisdóttir (Garún) myndlistarkona í Ólafsfirði. Þrjár tilnefningar bárust nefndinni, Guðrún Þórisdóttir, hljómsveitin Roðlaust og beinlaust og Kirkjukór Ólafsfjarðar. Guðrún útskrifaðist úr Myndlistaskóla Akureyrar árið 1994 í fagurlistadeild og hefur unnið óslitið að list sinni síðan. Útnefning bæjarlistamanns fer fram föstudaginn 20. janúar kl. 17.00 og verður nánar auglýst í Tunnunni. Garún Frétt og mynd af vef Fjallabyggðar, www.fjallabyggd.is Skrifað af Gísli Rúnar 05.01.2012 23:55Norðurland?smót í fótbolta að hefjastHið árlega Norðurlandsmót sem nú er kallað Hleðslumótið hefst á föstudag. Níu lið taka þátt í mótinu í ár og er þeim skipt í tvo riðla en líkt og áður fara allir leikirnir fram í Boganum. KF er í riðli með Fjarðabyggð, KA, Magna og Þór 2. Fyrsti leikur liðsins fer einmitt fram nú á Sunnudag þegar okkar strákar leika á móti Fjarðabyggð í Boganum klukkan 17:00. Skrifað af Gísli Rúnar 02.01.2012 14:28Skóla- og frístundaaksturSkóla- og frístundaakstur hefst aftur 4. janúar. Ekki verður ekið á morgun 3. janúar. Aksturstafla verður birt í kvöld eða á morgun. Ekki verður um miklar breytingar að ræða fyrstu tvær vikurnar en eftir það verður töflunni hugsanlega breytt þar sem breytingar verða á frístundaakstri. Allar breytingar verða birtar á www.fjallabyggd.is Skrifað af Gísli Rúnar 31.12.2011 00:09Brenna og flugeldasýningÁramóta brennan verður á sínum stað vestan við Ósinn kl. 20:00 á gamlárskvöld. Björgunarsveitin Tindur stendur svo fyrir glæsilegri flugeldasýningu kl. 20:30 með stuðningi frá Fjallabyggð og fyrirtækjum í bænum. Flugeldasalan verður opin frá 11-14 á gamlársdag. Gleðilegt nýtt ár og munið að fara varlega með flugeldana. :-) ![]() Skrifað af Gísli Rúnar 31.12.2011 00:04Sævar Birgisson íþróttamaður Fjallabyggðar 2011Skíðamaðurinn Sævar Birgisson var kjörinn íþróttamaður Fjallabyggðar árið 2011 við hátíðlega athöfn á Allanum á Siglufirði miðvikudaginn 28. desember sl. Sævar æfir og keppir undir merkjum Skíðafélags Ólafsfjarðar. 625.is óskar Sævari sem og öllum þeim sem tilnefndir voru innilega til hamingju með árangur sinn. Sævar Birgisson (tengdasonur Gullu og Steina Sínu) Skrifað af Gísli Rúnar 30.12.2011 22:17Kleifarberg ÓF 2 orðið RE 7Kleifarberg sem að lengi hefur haft einkennisstafina ÓF 2 og skráð á Ólafsfirði hefur fengið nýtt númer RE 7 og heimahöfn i Reykjavik og er eigandi skipsins Brim H/f Heimild (og einnig hægt að sjá mynd þar): http://thorgeirbald.123.is/blog/2011/12/30/592105/ Skrifað af Gísli Rúnar
Flettingar í dag: 385 Gestir í dag: 118 Flettingar í gær: 705 Gestir í gær: 190 Samtals flettingar: 789199 Samtals gestir: 157911 Tölur uppfærðar: 28.1.2012 12:59:06 |
Vafraðu umHöfundur síðu Nafn: Gísli Rúnar GylfasonFarsími: 863-4369Tölvupóstfang: gislirunar4@gmail.comHeimilisfang: Hlíðarvegur 8Staðsetning: Ólafsfjörður - hvað annað!Um: áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.TenglarEldra efni
|